Stofnað 1908 21 km2 land
Íbúafjöldi: 1.625, fjölgaði um 6,0% á síðasta ári.
Meðalaldur 36,8 ár.
Tekjur á íbúa: 789.000 (13.000 yfir landsm.)
Gjöld á íbúa: 779.000 (14.000 yfir landsm.)
Framlegð: 79.000
Eign á hvern íbúa: 2.166.000
Skuldir á hvern íbúa: 388.000
Eigið fé: 1.660.000
Útsvar er 14,52% (hámarksútsvar eins og í Sandgerði)
Fasteignagjöld m.v. 130 fm2 íbúð og 900.000 kr. tekjur hjóna: 188.263
Skólagjaldskrá er mjög sambærileg á milli sveitarfélaganna þó sýnu lægri í Garðinum. Um það bil 2.000 krónum hærri á mánuði fyrir vísitölufjölskylduna.
Stofnað 1886 65 km2 land.
Íbúafjöldi: 1.760, fjölgaði um 8,3% á síðasta ári.
Meðalaldur 36,1 ár.
Tekjur: 979.000 (212.000 yfir landsm.)
Gjöld: 945.000 (152.00 yfir landsm.)
Framlegð: 102.000
Eign á hvern íbúa: 2.568.000
Skuldir á hvern íbúa: 2.039. 000
Eigið fé: 889.000
Útsvar er 14,52% (hámarkútsvar eins og í Garði)
Fasteignagjöld m.v. 130 fm2 íbúð og 900.000 kr. tekjur hjóna: 244.364
Skólagjaldskrá er mjög sambærileg á milli sveitarfélaganna þó sýnu hærri í Sandgerði. Um það bil 2.000 krónum hærri á mánuði fyrir vísitölufjölskylduna.
íbúar , eða um 1% af íbúafjölda Íslands. Þar af rúmlega 800 börn
ára meðalaldur, eða lægri en landsmeðaltal sem er 37,9 ár.
hærra eigið fé sameinaðs sveitarfélags en landsmeðaltal.
tæplega skilja að byggðakjarna í Sandgerði og Garði.
Með eftirfarandi sviðsmyndunum sem dregnar voru upp af KPMG er leitast við að lýsa líklegri þróun samfélaganna í framtíðinni. Markmið sviðsmyndanna er þó fyrst og fremst að skilja umhverfið og skapa skilning á því hvað rétt sé að gera í dag til að undirbúa framtíðina.
Mælikvarði góðra sviðsmynda er ekki sá hversu vel eða nákvæmlega þær rætast í framtíðinni, heldur hvort þær leiði til betri ákvarðana í dag.
Ef af sameiningu verður þá rennur efnahagur núverandi sveitarfélaga saman, bæði eignir og skuldir. Sameinað sveitarfélag mun því greiða skuldir af sameiginlegum tekjum.
Eins og á við um öll þjónustugjöld, þá verða gjaldskrár sveitarfélaganna samræmdar í eina í sameinuðu sveitarfélagi. Ný bæjarstjórn mun taka endanlegar ákvarðanir um gjaldskrá, en eins og fram hefur komið er reynslan sú að við sameiningu sveitarfélaga hafa gjaldskrár verið samræmdar niður á við.
Tekjur af fasteignaskatti vegna flugstöðvar og annarra mannvrkja þar renna til Sandgerðisbæjar.
Eftir umræður og að vel yfirlögðu ráði var það sameiginleg ákvörðun bæjarstjórna beggja sveitarfélaganna að unnin væri úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna. Í framhaldi af því tóku bæjarstjórnirnar ákvörðun um að fela íbúum sveitarfélaganna að ákveða með atkvæðagreiðslu, eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, hvort af sameiningu sveitarfélaganna verði eða ekki.
Samkvæmt lögum fer eftir ákvörðun íbúa í sveitarfélögum með atkvæðagreiðslum hvort sveitarfélög sameinast. Ef upp kemur tillaga um sameiningu Garðs og/eða Sandgerðisbæjar við Reykjanesbæ, þá væri það ákvörðun íbúanna með atkvæðagreiðslu hvort af því yrði. Sameining sveitarfélaga á Íslandi gerist almennt ekki með boðvaldi stjórnvalda, eins og reyndin er t.d. í flestum hinna Norðurlandanna.
Dopóki słońce świeci i robi swój krag , zachody słońca beda widoczne z Garðskaga.
Rada gmin Garður i Sandgerðir postanowiła dokładnie ocenić zalety i wady połączenia gmin, a następnie umieścić je w rękach mieszkańców, czy zjednoczyć gminy, czy nie.
Zjednoczony samorząd terytorialny pomyśli o dzieciach i nastolatkach, upewni sie że wypełnią obowiązki i dotychczasowe zadania skupiajace sie na dzieciach i mlodziezy .
Kalka jest własnością wszystkich gmin na południu i odpowiada za ich usuwanie. To nie zmieni się w przypadku połączenia.
Według raportu KPMG zakłada się, że jeśli gminyzostaną połączone , istniejace biura zostaną wykorzystane do administrowania jednolitą gminą. W obu miejscach beda świadczone usługi dla mieszkańców, które muszą być umieszczone w lokalnym biurze. Następnie administracja zostanie podzielona na biura w każdej lokalizacji zgodnie z klasami usług i zespołami zastępczymi. Na przykład będą inne lokalne finansowe, administracyjne, budownicze, na budowe i planowanie. W innym lokalu beda sprawy rodzinne jako całość, społeczne, edukacyjne, kulturalne i rekreacyjne. W ten sposób obecne budynkingmin będa uzywane, koncentrując się na dostępności mieszkancówi do administracji gminy i dobrej obsługi ludności. Więcej informacji na temat s. 54 w raporcie KPMG.
Oczekuje się, że dzieci uczęszczac beda do “szkoły w swojej okolicy”, tj. dzieci w Sandgerði idą do szkoły tam i dzieci w Garður ida do tamtejszej szkoly. W szkołach w większych miastach dzieci nie sa wozone autobusami do innej szkoly gdy rocznik jest zbyt duzy lub zbyt maly, szukane sa inne rozwiazania sytuacji Zarówno Sandgerði, jak i Garður zobowiązały się do dobrej wspólpracy w dziedzinie edukacji i wszyscy powinniśmy przyczynić się do tego, że w tym dziale nie będzie znaczacych zmian.
Niedopuszczalne jest zróznicowanie mieszkańców tak,aby istnialy różne taryfy, tzn. W Sandgerði i Garður. Jest więc jasne, że w nowej , polaczonej gminie obowiązywać będzie jedna taryfa. Jeśli gminy się połączą, stawki przedszkolne będą takie same. To samo dotyczy podatków od nieruchomości i wszystkich innych opłat.
Zwyczajem na Islandii, gdy gminy się połączaja, ze nowe taryfy uwzględniaja niższe podatki.
Jeśli gminy się połączą, to następna rada miejska będzie musiała podjąć ostateczną decyzję co do wdrożenia taryf.
Zmiany w strukturze organizacyjnej
Dni Sandgerði i Festiwal Zachodu Slonca będą kontynuowane.
Ankieta wyborczą rozpoczęła sie juz w okręgowych komisariatach i ambasadach zagranicznych.
Wybory odbeda sie 11 listopada w szkołach podstawowych w Garður i Sandgerði. Spotkanie wyborcze zostanie ogłoszone oddzielnie przed dniem wyborów.
Przyjmuje się, że w obydwu miejscach będą istnieć biura komunalne jak do tej pory, ale pewna specjalizacja będzie w jednym i drugim biurze.
W przypadku zjednoczenia zostanie podjęta decyzja w porozumieniu z mieszkańcami.
Różnią się od obydwóch gminach, co można zobaczyć w raporcie KPMG. Jednak dzięki zjednoczeniu podatki i opłaty będą skoordynowane.
Przy polaczeniu gmin wkady pozostaną niezmienione, tak jak teraz.
Í stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum eru nú fimm fulltrúar, einn fulltrúi frá hverju sveitarfélaganna fimm á Suðurnesjum. Þannig er t.d. einn fulltrúi frá stærsta sveitarfélaginu og einn frá því minnsta. Hver stjórnarmaður hefur því sama vægi óháð stærð sveitarfélaganna. Við sameiningu Sandgerðisbæjar og Garðs mun sameinað sveitarfélag væntanlega eiga einn fulltrúa í stjórninni. Það mun ekki hafa nein áhrif varðandi beina hagsmuni íbúa Sandgerðis og Garðs, enda vinnur Samband sveitarfélaga að sameiginlegum hagsmunum í þágu allra íbúa á Suðurnesjum.
Samkvæmt skýrslu KPMG er gert ráð fyrir að ef sveitarfélögin verða sameinuð verði núverandi bæjarskrifstofur sveitarfélaganna nýttar fyrir stjórnsýslu sameinaðs sveitarfélags. Á báðum stöðum verði afgreiðslur til að veita þeim íbúum þjónustu sem þurfa að sækja hana á bæjarskrifstofu. Þá verður stjórnsýslunni skipt á skrifstofurnar á hvorum stað í samræmi við þjónustuflokka og uppskiptingu teyma. Til dæmis verði á öðrum staðnum fjármál, stjórnsýsla, framkvæmdir, byggingar-og skipulagsmál. Á hinum staðnum fjölskyldumálefni í heild, félags-, fræðslu-, menningar-og frístundamál. Þannig verði núverandi húsnæði sveitarfélaganna nýtt, með áherslu á gott aðgengi íbúanna að stjórnsýslu sveitarfélagsins og á góða þjónustu við íbúa. Nánar um þetta á bls. 54 í skýrslu KPMG.
Svo lengi sem sólin skín og gengur sinn sólargang mun sólsetrið sjást frá Garðskaga.
Gert er ráð fyrir að börn gangi í sína „hverfisskóla“, þ.e. börn í Sandgerði fara í sinn skóla þar og börn í Garði í sinn skóla þar. Í skólum í stærri bæjum hafa börn ekki verið keyrð milli hverfa, heldur fundnar aðrar lausnir ef bekkir eru of stórir eða of litlir. Bæði Sandgerði og Garður hafa lagt metnað í að standa vel að skólastarfi og það er okkar allra að stuðla að því að ekki verði breytingar á þeim áherslum sameinist sveitarfélögin.
Bæjarstjórnir Garðs og Sandgerðis ákváðu að vel yfirlögðu ráði að láta fara fram úttekt á kostum og göllum sameiningar sveitarfélaganna og leggja það svo í hendur íbúa hvort eigi að sameina eða ekki.
Sameinað sveitarfélag mun eftir sem áður hugsa um og huga að börnum og unglingum, sinna þeim skyldum og verkefnum sem þau hafa gert hingað til.
Kalka er í eign allra sveitarféaga á Suðurnesjum og sér um sorphirðu og sorpeyðingu. Það breytist ekki við sameiningu.
Óheimilt er að mismuna íbúum í sveitarfélagi með þeim hætti að mismunandi gjaldskrá sé milli hverfa, í þessu tilfelli í Sandgerði og Garði. Það er því alveg ljóst að ein gjaldskrá mun gilda í sameinuðu sveitarfélagi. Verði sveitarfélögin sameinuð munu leikskólagjöld í leikskólunum verða þau sömu. Það sama gildir um fasteignagjöld og öll önnur gjöld.
Venjan hérlendis þegar sveitarfélög hafa sameinast hefur verið sú að nýjar gjaldskrár hafa tekið mið af lægri gjöldum.
Verði sveitarfélögin sameinuð kemur það í hlut næstu bæjarstjórnar að taka endanlega ákvörðun um hvernig gjaldskrá verður útfærð.
Breytingar á stjórnskipulagi
Framlög til sameinaðs sveitarfélags verða, að óbreyttu jöfnunarkerfi, sambærileg og þau eru nú.
Skattar og gjöld eru mismunandi sveitarfélögunum tveimur, eins og sjá má í skýrslu KPMG. Með sameiningu verður gjaldskrá hins vegar samræmd.
Ef sameining verður samþykkt, þá verður ný bæjarstjórn kosin í maí 2018 og nýja sveitarfélagið tekur til starfa í framhaldinu.
Það verður ákveðið í samráði við íbúa, ef til sameiningar kemur.
Sandgerðisdagar og Sólseturshátíðin verða áfram.
Sveitarfélögin hafa ekki áhrif á það hvort sjálfstæð og frjáls félög sameinast, hvort sem það eru íþróttafélögin, björgunarsveitirnar eða önnur félög.
Það er gert ráð fyrir að áfram verði bæjarskrifstofur í báðum byggðakjörnum, en ákveðin sérhæfing verði á hvorum stað.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er hafin hjá sýslumönnum og í sendiráðum erlendis.
Þann 11. nóvember verða kjörstaðir í grunnskólum Garðs og Sandgerðis. Kjörfundur verður sérstaklega auglýstur fyrir kjördag.
Það er gert ráð fyrir að áfram verði reknir leik- og grunnskólar í báðum byggðakjörnum, enda er börnum að fjölga í þeim báðum.